Skip to content

Flutningar með bílum


Lofthiti í flutningsrými bíla sem flytja ferskar fiskafurðir ætti að vera milli -2 og 0°C og aldrei yfir 4°C.  Við ofurkældar aðstæður (-2°C til 0°C) geymist fiskurinn best en hvernig tekst að viðhalda þessu hitastigi í afurð er m.a. háð hitaeinangrun pakkninga og flutningstíma.

Mikilvægt er að nota vélknúna kæligáma við flutning. Í flestum flutningum þarf varmaflæðistuðull (K eða U) að vera jafn eða lægri en en  0.4 W/m2/K . Sé flutningstíminn hins vegar aðeins nokkrar klst. ætti að duga að nota einangraða kæligáma (K < 0.7 W/m2/K), sérstaklega ef umhverfishiti er nálægt 0°C.

  • Kannið hitastig afurða fyrir lestun
  • Leyfið fríu kældu lofti að flæða umhverfis farminn
  • Hringblásið kældu lofti frá kælivélum um allt kælirými bílsins
  • Fylgist vel með lofthitastigi í kælirýminu og sérstaklega á þeim stöðum sem eru fjærst kælivélum. Þar sem kælivélar eru yfirleitt staðsettar fremst í bílnum er mest hætta á hitnun aftast og upp við loft

Varðandi gildandi reglur um flutning kældra og frosinna afurða sem og um flutningstæki er vísað á heimasíðu Matvælastofnunar (MAST).